7.1.2009 | 21:54
Hvað er utanríkisráðherrann að rugla?
Ég held að margir séu reiðir eftir Kastljós kvöldsins. Þar sagði Ingibjörg Sólrún við allt of linan Helga Seljan eitthvað á þá leið að hún skildi ekki í fólki sem heimtaði "nýtt Ísland" strax, á þremur mánuðum. Fólk yrði að athuga að ríkisstjórnin væri í "miðjum skafli", að moka, hún væri að byggja upp nýtt kerfi!!!
Þetta er mikill misskilningur. Fólk hefur aldrei heimtað Nýtt Ísland strax. Fólk vill fara að bretta upp ermnarnar og fara að byggja upp manneskjulegra samfélag og allir vita að það á eftir aða taka langan tíma.
Ætlast hún til þess að við treystum núverandi ríkisstjórn til þess að byggja upp á rústum þess sem var? Ráðherrann sagði að þingmennirnir hefðu sitt umboð frá síðustu kosningum! Heldur hún að þær raddir sem hafa hrópað það hvað eftir annað, á torgum, á götum, í blaðagreinum, á blogginu að þeim sé einmitt ekki treyst lengur og að við viljum fá nýtt fólk í forystu, - að þetta séu raddir fáeinna öfgamanna? Heldur hún enn að þjóðin sé ekkert að segja? Þetta fólk hefur einfaldlega ekkert traust lengur -já, og húntreystir Árna Matt. "til allra góðra verka" þótt hann hafi verið staðinn að lögleysu og spillingu!¨Og Geir líka þótt það væri ekki nefnt þarna af einhverjum undarlegum ástæðum.
Svo tuldraði hún eitthvað um að ekki hefðu þeir sem sætu núna í Seðlabankanum byggt upp það kerfi sem var ekki öflugra en svo að allt hrundi! Nú! Ekki Davíð Oddsson, hönnuður þess kerfis í forsætisráðherratíð sinni? Sátu ekki núverandi embættismenn og núverandi ráðherrar og aðrir pólitíkusar í sínum núverandi stólum mánuðum saman á meðan hrikti í stoðunum og allir sem vit höfðu á sögðu að bankakerfið og efnahagskerfið væri að fara til fjandans?
Það þýðir ekkert að segja að þetta sé "eftiráspeki", í kringum áramótin voru allar þessar viðvaranir rifjaðar samviskusamlega upp.
Ég held að fjölmiðlafólkið okkar sé loksins að vakna!
En ég er rasandi .
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.1.2009 | 13:55
Metro-módelið komið í þrot
ÉG hef haft efasemdir um að þetta fyrirkomulag gengi, allt frá byrjun. Fríblöð ganga þar sem mikill fjöldi fólks fer um á skömmum tíma og flestir fá sér eintak til þess að lesa í lestinni á leið til vinnu; á því byggðist Metro-hugmyndin. Hér eru ekki þær aðstæður.
En jafnvel þótt blaðið fari til tugþúsunda manna á hverjum degi er þetta viðskiptamódel andstætt öllum hugmyndum um frjálsa blaðamennsku. Þessi blöð eru einvörðungu háð auglýsendum um rekstrarfé, sem getur gengið um hríð meðan þensluástand ríkir. En á samdráttartímum verður að skera niður rekstrarkostnað og þá er náttúrlega byrjað á því að spara í mannahaldi, og hverjum er sagt upp fyrst? Þeim sem hafa lengsta reynslu og fá hæst kaup. Nú er þetta ferli komið í gang hjá Fréttablaðinu, sem hefur svosem átt góða spretti, en peningarnir hafa alltaf yfirhöndina, eigendavaldið er sterkt og sannleikurinn tapar í því stríði sem nú er hafið, stríðið við að halda blaðinu á floti á tímum efnahagsöngþveitis.
Vonandi tekst áskriftarblöðunum að halda velli þótt það sé erfitt líka, og já, nú njótum við þess að eiga Ríkisútvarp, sem verður vonandi breytt aftur í ríkisstofnun!
Útgáfudögum Fréttablaðsins fækkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.1.2009 | 01:05
Allt á borðið um ES-aðild, kosti OG galla
Sem ég sit hér aðfaranótt fyrsta almenna vinnudags ársins 2009 velti ég fyrir mér hvað muni eiginlega gerast á þessu ári. Miðað við þá stefnu sem umræðan hefur tekið undanfarna daga held ég að ætlunin sé að reka okkur mjög hratt út í það að taka einhvers konar ákvörðun um Evrópusambandsaðild. Þá held ég að við verðum að passa okkur mjög vel því annars vegar höfum við Evrópusinna, sem sjá ekkert annað en aðild og hins vegar þá sem sjá ekkert annað en illt við aðild. Ég hef verið í báðum hópunum; lengst af hef ég verið mikill andstæðingur aðildar en haust snerist ég skyndilega og reifst jafnvel við mína nánustu, spurði til að mynda hvort aðildarríkin hefðu öll misst fullveldi sitt - hvort Frakkar, Þjóðverjar og allar þessar þjóðir væru ósjálfstæðar og hvort ekki væri réttara að vinna með öðrum Evrópuríkjum en einangra okkur hér úti í hafi.
En ég er alls ekki viss, aðallega vegna þess að ég veit of lítið um þetta. Þess vegna er aðalatriðið að ítarleg og upplýsandi umræða hefjist sem fyrst og allt verði lagt á borðið, bæði kostir OG gallar. Hvað með fiskinn? Hvað með aðrar auðlindir? Er hætta á að við missum að einhverju leyti yfirráðarétt yfir þessu? Fyllast Íslandsmið af fiskiskiðum frá Spáni, Portúgal, Bretlandi? Verður ástandið eins og áður farið var að stækka fiskveiðilögsöguna?
Allt þetta verðum við að fá að vita, og ekki kostina frá Samfylkingunni og gallana frá Sjálfstæðisflokknum eða LÍÚ heldur verða fjölmiðlar heldur betur að fara að hysja upp um sig brækurnar og útvega okkur upplýsingar og umfram allt spyrja stjórnmálamenn og embættismenn hvassra spurninga, láta þá ekki sleppa endalaust með óljóst hjal, múður og undanslátt.
Allt á borðið og fulla hreinskilni, takk.
Og ef ég á að meta afstöðu vinstri flokkanna sýnist mér Samfylkingin vera staða í sínum rétttrúnaði en að Vinstri græn séu tilbúin að ræða málið - og þá væntanlega á krítískan hátt. Það tel ég vænlegra en hallelújahjal Samfylkingarmanna til þessa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.1.2009 | 21:11
Skrifið ekki barnamál í mbl.is!
Árekstur skíðafólks í Austurríki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
29.12.2008 | 14:43
Hverjir þurfa að fara í endurhæfingu?
Til þess að gæta allrar sanngirni vil ég leggja áherslu á að Jón Ásgeir er náttúrlega ekki einn sekur - og eins og hann skrifar í varnargrein sinni í Morgunblaðinu ber hann til að mynda ekki ábyrgð á Icesafe-reikningunum. Þarna koma margir aðrir glannar við sögu, sem fóru offari í ákefð sinni, drifnir áfram af gróðafíkn og græðgi, vildu meira og meira. En bankamennirnir sem stjórnuðu útlánunum bera ekki minni sök, mér láðist að nefna það í morgun. Og ráðamennirnir sem þverneituðu að nokkuð væri að þegar erlendir bankamenn spurðu forviða hvað þeir væru að hugsa, sögðu að þeir skildu bara ekki hinn íslenska hugsunarhátt - þeir gerðu það náttúrlega ekki! - og hver sagði aftur að þessi bandaríski hagfræðingur, sem lét í ljós undrun sína á síðasta ári yfir því að stjórnvöld gerðu ekkert, þyrfti líklega að fara í endurhæfingu?
Hverjir þurfa að fara í endurhæfingu núna?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.12.2008 | 08:56
Já, með dyggri aðstoð settirðu okkur á hausinn, Jón
Nei, Jón Ásgeir, þú settir Ísland ekki á hausinn einn þíns liðs. Þið lögðust nokkrir á eitt. Í hvers þágu fóruð þið í þessa svonefndu "útrás"? Í þágu þjóðarinnar? Nei, í ykkar eigin þágu. Það hefði verið í lagi ef þið hefðuð sést fyrir og vitað hve langt þið ættuð að ganga. En þið hélduð áfram og áfram og áfram þangað til allt hrundi. Ég hef heyrt það nefnt "eftiráspeki" þegar menn segja að ekki hafi verið tekið mark á viðvörunarljósum sem blikkuðu allt síðastliðið ár. En Hallgrímur Thorsteinsson rifjaði upp ýmislegt sem var í fréttum um það fyrri hluta ársins í þætti sínum Vikulokunum á laugardaginn. Það var fróðleg samantekt og góð upprifjun fyrir alla. Hagfræðingar og bankamenn í útlöndum voru furðu lostnir á því sem var að gerast í ofvöxnu bankakerfinu hér en ráðamenn ypptu öxlum - hafa menn gleymt þeim ummælum varaformanns Sjálfstæðisflokksins að á bak við þetta hlytu að liggja annarlegar ástæður?
Já, Jón Ásgeir Jóhannesson, þú lagðir þig allan fram um að koma Íslandi á hausinn. Og nú átt þú að nýta alla þína "harðdrægni í viðskiptum" til þess að vinna í þágu þjóðarinnar - ekki í þína þágu - við að greiða upp í þá skuld sem nú er verið að leggja á herðar okkar. Það eiga allir hinir "útrásarvíkingarnir" að gera líka. Ganga fram niðurlútir, biðjast afsökunar á mistökum sínum og leggja fram allt það fé sem þeir geta tekið úr fyrirtækjum sínum erlendis og bankahólfum í skattaparadísum. Þá má vera að þeim verði fyrirgefið. Því það er stórmannlegt að fyrirgefa mönnum misgjörðir þeirra - ef þeir iðrast sjálfir.
Jón Ásgeir tekur dóma nærri sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.12.2008 | 14:27
Ríkisstjórnin er að fara með okkur út í fen fátæktar
Hefur ríkisstjórn Íslands ekki frétt af þessu? Hún skar hressilega niður í öllum málaflokkum í gær. Til menntamála, til heilbrigðismála, til verklegra framkvæmda. Er þetta ef til vill finnska leiðin - að skera allt niður þar til atvinnulífið og allt kerfið hrynja? Stefnir ríkisstjórnin þjóðinni út í fen fátæktar og örbirgðar? Hvers vegna hikar fólk við að gera allsherjar uppreisn? Og hvar eru auðævi olígarkanna íslensku sem keyrðu þjóðfélagið í þrot???
Ég hélt að ríkisstjórnin væri að vinna í samráði við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn! Hvers vegna hefur hann þá ekki kippt í taumana?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.12.2008 | 16:11
Bónus er bara harður bissniss!
Hvað sem segja má um upphæð sektarinnar sem Högum er gert að greiða vegna undirboðanna er hitt víst að ábyrgð þeirra feðga er mikil. Árum saman var fullyrt að Bónus beitti birgja valdi til þess að þeir verðlegðu vörurnar eins og Bónusi þóknaðist. Það hlýtur síðan að hafa valdið hærra vöruverði annars staðar - sem Bónus hagnaðist náttúrlega á. Það sýnir líka máttleysi fjölmiðla, að þeir hafa aldrei tekið á þessu þótt þetta væri altalað. Eða gerðu þeir það? Ekki varð ég var við það. Þarna brugðust þeir lika!
Og vegna Bónuss eru varla til litlar matvöruverslanir, hverfisverslanir - kaupmaðurinn á horninu - lengur, til skaða fyrir þá sem eiga ekki bíl og fyrir mannlífið í hverfunum. Það hefur jafnframt stuðlað að aukinni bílaumferð - og mengun - og sóun.
Hvernig fara Hagar svo út úr bankahruninu? Standa þeir feðgar jafnréttir eftir eða......? Spyr sá sem ekki veit. En eitt er víst: Þeir sem reka Bónus gera það ekki af góðsemi við okkur almenning, eins og þegar hefur verið bloggað, heldur eru þeir í hörðum bissniss. Og harður, miskunnarlaus bissniss er vonandi í dauðateygjunum!
Brot Haga alvarlegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.12.2008 | 11:57
Skærumótmæli farin að bera árangur!
Þökkuðu fyrir kaffið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
17.12.2008 | 10:28
Hattinn af fyrir blaðamanninum unga
Þetta var óþokkabragð af Reyni Traustasyni og ber honum ekki gott vitni sem blaðamanni og ritstjóra. En hattinn af fyrir Jóni Bjarka. Það er dálítið hlálegt að þegar íslenskur blaðamaður grípur til svolítið "walraffskrar" aðferðar skuli það afhjúpa dagblaðsritstjóra. Enda þótt blaðamaðurinn ungi hafi þurft mánuð til þess að taka ákvörðun er hans gjörð eigi að síður góð, einnig félaga hans sem finnst sér ekki vera sætt á þessari ritstjórn. Og vonandi verður þetta til þess að íslensk blöð og aðrir fjölmiðlar taki á sig rögg og beini rannsóknum sínum af fullum krafti gegn höfuðsyndaselunum í harmleik haustsins, útrásar- og bankamönnunum, og láta sig engu varða um það þótt þeir eigi miðlana. Ef þeir grípa til óyndisúrræða og hóta að loka sýna þeir þjóðinni einfaldlega sitt rétta andlit og hver veit til hvers það kann að leiða - kannski góðs. En mitt fertuga blaðamannshjarta samgleðst þessum unga blaðamanni og ég er þess fullviss að hann á eftir að fá sín tækifæri - og lætur vonandi meira að sér kveða í blaðamennsku. Ekki veitir af að hrista upp í íslenskum fjölmiðlaheimi sem svaf því miður lengstaf á útrásartímunum og spurði varla nokkurra spurninga. Þarna voru þó undantekningar - Spegillinn á Rás 1 Ríkisútvarpsins syndi að þar fór og fer eini raunverulega frjálsi fjölmiðill landsins.
Reynir Traustason mætti annars taka ofan sinn eigin hatt öðru hverju, þótt ekki væri til annars en að sýna náunganum örlitla kurteisi.
Aldrei aftur mun óttinn stýra fréttaflutningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)