Ofbeldi leiðir af sér ofbeldi

Þegar ég byrjaði að skrifa þetta blogg mitt hafði ég ekki trú á að margir myndu lesa það. En ég hafði rangt fyrir mér því rúmlega þúsund manns hafa ratað inn á síðuna frá því snemma í apríl! Auðvitað hafa ekki allir lesið þetta litla sem ég hef skrifað og örfáir hafa gert athugasemdir. Þó gerðu tveir athugasemdir við skrif mín um Taser-byssur og lögregluna, annar lýsti sig sammála mér en hinn, sem nefnir sig Ragnar S., er algjörlega ósammála og telur að lögreglunni sé nauðsyn á slíkum vopnum, bendir auk þess á að óháðar rannsóknastofnanir hafi sýnt fram á skaðleysi þeirra. Ekki skal ég mótmæla slíkum rannsóknaniðurstöðum en er hins vegar enn á þeirri skoðun að ég treysti ekki íslenskum lögreglumönnum - né lögreglumönnum yfirleitt - til þess að gæta hófs við notkun vopnanna eins og viðbrögð lögreglunnar við Rauðavatn á dögunum afhjúpaði svo rækilega. Dæmin um ofsafengin viðbrögð lögreglunnar að óþörfu eru of mörg í gegnum tíðina. Íslenskir lögregluforingjar mættu hugleiða þau hófstilltu viðbrögð lögreglunnar í París í maí 1968, undir stjórn manns sem nú er virðulegur öldungur og er þakkað það að ekki fór verr en raunin var. Ég man eftir öðru slíku tilfelli í Osló fyrir um 30 árum. Nokkrum sinnum höfðu orðið óeirðir í grennd við konungshöllina, á svonefndu Nisseberg, sem voru raktar til æsingamanna úr röðum nýnasista sem æstu upp harða vinstrimenn, kommúnista, Maóista og fleira fólk sem var áberandi á þeim árum. Eitt kvöldið var rólegheita varðstjóri á vakt og ég fylgdist með því í beinni útvarpssendingu hvernig hann talaði liðið til, vinstrimennirnir slöppuðu af en nýnasistarnir laumuðust burt með skottið á milli fótanna.

 Ég held að í þessu efni gildi það sama og í samskiptum milli þjóða, að vopnavald leysir ekkert, gerir bara illt verra eins og spriklið í Bush þessi misserin sýnir best. Ofbeldi leiðir af sér ofbeldi. Já, ekki gleyma Ísrael.

Lögreglan talar um að þeir þurfi að verja hendur sínar og vísar til árásar fóla nokkurra á lögreglumenn við skyldustörf fyrir nokkru - já, þeir segja að slíkt fari vaxandi. Í fyrsta lagi hélt ég að lögreglumenn væru sérstaklega þjálfaðir í að yfirbuga óða menn og í öðru lagi held ég að þurfi að byrja á dómurunum. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að mjög furðulegri niðurstöðu í þessu máli þar sem honum þótti löggan ekki hafa gert nægilega vel grein fyrir sér - þótt þeir sýndu lögregluskírteini og væru girtir belti með handjárnum og með talstöðvar í höndum! Og auðvitað eiga þung viðurlög að liggja við árás á lögreglumenn við störf.

 Annars langar mig í þessu sambandi til þess að hvetja fólk til að hlusta á leikrit Guðmundar Kambans, Marmara, sem Útvarpsleikhúsið flytur um þessar mundir á sunnudagseftirmiðdögum, en þar er ansi hreint djúp pæling um réttvísina - henni eiginlega snúið á haus til þess að reyna að kryfja hana til mergjar.

Bloggið er vafalaust merkt fyrirbæri og trúlega mikilvægt lýðræðinu. Hver og einn bloggari ræður yfir sínum eigin fjölmiðli og getur komið sér upp nokkuð stórum lesendahópi - og  eigum við að segja "samræðuhópi"? Hér getur almenningur fengið rödd og tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri án þess að þurfa að bíða margar vikur eftir plássi fyrir grein í Mogganum eða Fréttablaðinu - þar eru lesendurnir raunar fleiri en biðtíminn oft svo langur að málefnið sem til umræðu er oft úrelt orðið loks þegar greinin birtist. En ég viðurkenni að ég er ekki alltaf upplagður til að skrifa "gáfulega" um mikilvæg málefni að loknum vinnudegi fyrir framan skjáinn; ég vinn þessa mánuðina í spreng við að ljúka handriti fyrir mitt sumar og er ekki alltaf upplagður til að blogga seint á kvöldin. Það er þá helst seint á sunnudagkvöldi eftir hvíldarhelgi eins og núna.

En ég vil að lokum þakka fréttastofu Sjónvarpsins fyrir að vekja athygli á því furðulega framferði starfsmanna hjá Reykjavíkurborg að losa sig við olíumengaðan jarðveg  upp á heiðina þarna við Reynisvatn, hvað sem hún heitir, og eyðileggja þúsundir trjáa. Það er eins og fávitar séu þarna á ferðinni! Og ég vona að fréttamenn vaki yfir skipulaginu á Hólmsheiði þar sem gert er ráð fyrir að rústa gömlu skógræktarsvæði. Hvernig er það annars, er það ekki einmitt þarna sem talað er um nýjan flugvöll? Á að byggja íbúðarhús þarna fyrst, setja svo niður flugvöll? Og í öllum bænum ekki láta trjástuld Kópavogsmanna í Heiðmörkinni gleymast! Hvernig lyktaði því máli?

 


Sannleikurinn um Taser?

Já, hver er sannleikurinn um þessa "rafmagnsstuðbyssu" sem íslenskir lögreglumenn vilja koma höndum yfir til þess að - ja, til hvers? Verja sig eða yfirbuga brjálaða menn? Með slíku vopni væri lögregla á okkar friðsælu eyju ekki lengur vopnlaus. Viljum við vopnaða lögreglu?

Á friðsælum hvítasunnudegi þegar austanáttin er furðu sterk hér í Hafnarfirði og maður þakkar sínum sæla fyrir að vera ekki einhvers staðar úti á þjóðvegi blasir við furðulegt skrif lögreglumanns í sunnudagsmogga, bls. 41. Fyrirsögnin er: Sannleikurinn um Taser valdbeitingartækið og niðurstaða þeirrar ungu löggu sem þarna hefur slegið á lyklaborð er að líklega séu "þeir sem hafa yfirgnæft umræðuna um Taser valdbeitingartækið séu akkúrat þeir sem eru stundum í þeim aðstæðum að tækið yrði jafnvel notað gegn þeim."

Já, akkúrat það!!!

Þetta eru skrítin rök. En enn skrítnara er að löggumaðurinn gerir málflutning Amnesty International í þessum efni tortryggilegan en tekur niðurstöður "hlutlausra rannsókna" á vegum framleiðandans sem heilagan sannleika. En sannleikurinn er sá að eftir atburðina við Rauðavatn treysti ég ekki lögreglunni. Það er augljóst á þeim myndskeiðum sem unnt var að skoða á netinu að lögreglan missti vald á skapsmunum sínum - það sem meira er: Varðstjóri á staðnum bað fréttamenn að bíða og sjá "verkin tala". Verkin töluðu svo sannarlega.´

 Ég "gúglaði" "taser" og komst að því að þessi vopn eru seld almenningi, m.a. á netinu og ódýrasta vopnið kostar 300$. Og það fann ég líka út að þetta fyrirtæki, Taser, hefur her lögmanna í því að kæra hvern þann réttarlækni sem dirfist að úrskurða að maður hafi látist af völdum þessa vopns. Það skal líta út fyrir að vera alveg "hættulaust", væntanlega svo það seljist betur á almennum markaði!

Mér varð satt að segja hverft við að sjá þann viðbúnað sem lögreglan hafði við Rauðavatn: Röð vígalegra, hjálmklæddra ungra manna með þessa plastskildi sem mynduðu óárennilegan vegg. Er það þetta sem menn mega eiga von á í framtíðinni? Og að auki vopnaðir rafmagnsbyssum? Lýðurinn skal ekki komast upp með neinn moðreyk framar! En nú hallar ekki á, vörubílstjórar hafa verið meðhöndlaðir eins og kínverskt heilsuræktarfólk og breskir náttúrverndarsinnar. Harkalegar náttúrlega en kannski verða skildirnir dregnir fram þegar í hart fer austur við Þjórsá, sem hlýtur að gerast hvað úr hverju.  Neið, maður hafði á tilfinningunni að þessum ungu löggum þætti einum of "gaman" að fjörinu við Rauðavatn og sannið til, þess verður ekki langt að bíða að þeir fá útrás næst!

Þá rifjast upp fréttin af því að héraðsdómur Reykjavíkur sló á fingur Útlendingastofnunar og dómsmálaráðuneytisins sem neituðu ungum Máritaníumanni um landvistarleyfi án þess, að því er virðist, að hafa haft fyrir því að rannsaka fullyrðingar hans um að hann hefði orðið fyrir misþyrmingum af hendi lögreglu í heimalandi sínu. Þetta þarf nú að kanna en vesalings maðurinn verður líklega að hírast suður í Keflavík enn um sinn, eins og hann hefur gert í fjögur ár! Þetta minnir á mál kúrdíska bóndans forðum daga sem var leynt á bæ norður í landi vegna þess að útlendingaeftirlitið vildi senda hann úr landi þótt hans biði fangelsi og ill meðferð fyrir það eitt að hann var Kúrdi. En íslensk yfirvöld höfðu einfaldlega haft samband við yfirvöld í heimalandi mannsins - mig minnir hann hafa verið frá kúrdíska hluta Tyrklands - og fengið þær upplýsingar þar að þetta væri tóm vitleysa!!! Því var trúað. En meðal annarra orða: Hver urðu örlög Kúrdans? Er hann ennþá fjósamaður fyrir norðan?

 


Stríðið um Hallargarðinn hafið fyrir alvöru!

Þá hefur salan á Fríkirkjuvegi 11 til Björgólfs-feðga verið samþykkt eins og vænta mátti. Það var ákaflega merkileg lífsreynsla að koma nálægt þessu máli og kynnast vinnubrögðum fólks innan borgarkerfisins.

Þetta mál snerist fyrst og fremst um það hvort leyfa ætti væntanlegum eigendum Fríkirkjuvegar 11 að gera ákveðnar breytingar Hallargarðinum svonefnda. Við sem erum í forsvari fyrir Hollvini Hallargarðsins viljum engar breytingar nema til upprunalegs horfs þessa almenningsgarðs. Í kaupsamningnum sem samþykktur var í kvöld var hins vegar gert ráð fyrir að setja mætti "viðhafnarinnkeyrslu" í garðinn og aðkomuplan sunnan hússins vegna fyrirhugaðs safns í kjallaranum. Á þeirri óvönduðu teikningu, sem fylgdi og er formlegur hluti af kaupsamningnum, er auk þess sýnt rof í hestagerðið gamla, sem er hundrað ára á þessu ári, og (leik)svið. Ekki er á það minnst í samningnum en þar er hins vegar talað um bílastæði, sem geta varla verið annars staðar en þarna.

Vegna baráttu okkar og borgarfulltrúa Vinstri grænna var hætt við viðhafnarinnkeyrsluna og lofað að aldrei yrði takmarkaður aðgangur almennings að garðinum og borgarstjóri lýsti yfir því að farið yrði eftir fornleifalögum hvað hestagerðið varðar, sem þýðir væntanlega að það verði ekki snert. Þó er gert ráð fyrir því í endanlegum samningi.

Við, stjórnarfólk Hollvina Hallargarðsins, hittum borgarstjóra á sunnudaginn og ræddum þetta við hann. Þar hafði aðallega orðið Hrólfur nokkur Jónsson, sviðsstjóri hjá borginni, fyrrverandi slökkviliðsstjóri. Framganga hans var frómt frá sagt ruddaleg, í hvert sinn sem hann opnaði munninn æsti hann sig og var augljóslega í vörn - fyrir hvern? Fyrir kaupendur, Novator ehf. Það fór ekki á milli mála. Fagfólkið í okkar hópi skýrði mál okkar mjög vel og gerði grein fyrir gildi garðsins og þeim verðmætum sem þar liggja og eina krafan sem við lögðum fram var að fá skriflega þær fullyrðingar borgarstjóra að ekki yrði snert við garðinum og hann yrði ætíð opinn almenningi. En við því var náttúrlega ekki orðið.

Svo hófst borgarstjórnarfundurinn. Ég hlustaði á netinu fram til kvöldverðarhlés og aftur frá því um kl. 20. Eiginlega ofbauð mér sá kjaftagangur sem þar var fram borinn, eilífur orðhengilsháttur um smáatriði og útúrsnúningur, hótfyndni og hártoganir. Ég er eiginlega orðlaus. Það var eins og oftast bæði á Alþingi og í borgarstjórn, meirihlutinn hefur myndað sér skoðun og heldur fast við hana, minni hlutinn reynir að rökstyðja mál sitt en ekkert hrín á meirihlutanum. Svo er allt samþykkt eins og ákveðið hafði verið. Við erum fullvissuð um að í raun og veru gerist ekkert, nema þetta aðkomutorg verður gert. Samt eru í samningnum heimildir fyrir ýmsum breytingum - og það sem meira er: Ef borgin vill breyta einhverju seinna þarf að leggja fram ítarlegar og nákvæmar teikningar þar sem grein er gerð fyrir breytingunum. Annað en rissið sem þeir lögðu fram sjálfir, riss sem má túlka fram og til baka!

Í lok fundar okkar með borgarstjóra og sviðsstjóra sagði ég á þá leið að maður sem hefur efni á að kaupa hús fyrir næstum milljarð hljóti að hafa flestalla þræði í hendi sér.

En menn skulu vita það að Hollvinir Hallargarðsins munu beit sér fyrir því að um leið og farið verður að hrófla við garðinum grípum við til allra tiltækra ráða og kærum hvaðeina. Þetta skal fara fyrir Hverfisráð miðborgar og skipulagsyfirvöld og allir kærufrestir nýttir til hins ýtrasta.

 Sjáið annars nánar um atburði dagsins á hollvinir.net. Því miður varð myndavélin mín rafmagnslaus þegar þeir félagar Benedikt og Hilmir Snær komu á virðulegu tölti eftir Ráðhússbrúnni og riðu síðan eftir gangi Ráðhússins og fóru út hinum megin. Starfsmenn sem þarna voru urðu skíthræddir og sögðu að þetta væri bannað - en var þá bent á að þarna væri aðeins skilti með yfirstrikuðum hundi, ekki yfirstrikuðum hesti. Þá sagði einn þeirra að hellurnar á gólfinu lægju á sandi og undir þeim væru lagnir sem gætu skemmst! "Já, ég vissi að þetta hús væri byggt á sandi", varð mér að orði en ég held hann hafi ekki skilið það.

Ég stenst ekki að rifja það upp úr umræðunum í kvöld að Gísli Marteinn sagði undir lokin að hann vissi ekki betur en að búið væri að ernig rjúfa skarð í hestagerðið, öðruvísi hefðu hestarnir varla komist inn! Því myndi engu muna að stækka gatið svo þar kæmist bíll. Hvernig skyldu hestar Thors Jensens hafa komist inn í réttina? Klifruðu þeir yfir vegginn?

 

  


Mótmælalisti á netinu

Nú er mótmælalistinn kominn á netið, slóðin er:

 

http://www.petitiononline.com/f11rv101/petition.html

 

Skrifið undir og dreifið slóðinni!

 Með bestu kveðju


Baráttan fyrir frjálsum Hallargarði í fullum gangi!

Undirskriftalistar vegna mótmæla gegn því að tveir af auðmönnum þessa lands fái að loka Hallargarðinum þegar þeir þurfa að bjóða heim vinum sínum hefur fengið prýðis undirtektir, allir boðnir og búnir að skrifa undir og dreifa listum.

Verið er að útbúa síðu á netinu þar sem hægt verður að kvitta fyrir þessi mótmæli en það hefur eitthvað dregist. Vonandi kemst hún í gagnið á morgun. Auðvitað eru allir í þessu á hlaupum, allt önnum kafið fólk en þetta eru líka vanir menn í svona aðgerðum og vonandi hrífur þetta, vonandi verður Hallargardððinum þyrmt.

Ásgeir Friðgeirsson, áróðursmeistari þeirra feðga, reyndi að snúa þessu upp í misskilning og segir að enginn ætli að loka garðinum. En enginn hefur sagt að þeir ætli að gera það - "nema" þegar "tignir gestir" koma, "nema" nokkra daga á ári.  Það eina sem hefur verið sagt í þessu sambandi er að almenningur eigi að hafa fullan aðgang að garðinum þrjá daga á ári: sumardaginn fyrsta, 1. maí og 17. júní - já og líklega á menningarnótt. Eða var 1. maí ekki inni þessu? Líklega ekki. Þeir félagar hafa líklega megnustu fyrirlitningu á þeim degi!?

Í kvöld hringdi í mig níræð kona, sem vildi lýsa stuðningi við okkur. Hún heitir Sonja Schmidt, fædd frostaveturinn mikla, 1918, og bjó alla sína tíð að Sólvallagötu 4. En því miður seldi hún rétt áður en fasteignaverðið rauk upp, hún hefði líklega getað keypt fjórar íbúðir fyrir húsið í stað einnar, sem hún gerði. Hún lá á Hvítabandinu vegna botlangaskurðs 1968 þegar undirskriftum var safnað gegn niðurrifi Fríkirkjuvegar 11 og fékk held ég flesta eða alla sjúklinga, lækna og hjúkrunarfólk til að skrifa undir og telur fullvíst að það hafi riðið baggamuninn! Já, því ekki?

Aðalatriðið er að vera níræður og ennþá brennandi í andanum! Hafi gamla konan þökk fyrir stuðninginn.


Stöndum vörð um Hallargarðinn!

Á þessum síðustu tímum þegar góðærið og stöðugleikinn eru í andarslitrunum, verðbólgupúkinn bíður glottandi á næsta horni, verktakarnir ríghalda í hrörnandi húskumbalda í gamla bænum og nýríkir útrásarmenn hafa stórskaðað álit umheimsins á Íslendingum almennt, já þá biður einn þessara auðmanna um að fá keyptan einn af almenningsgörðum miðborgarinnar. Og meiri hluti borgarstjórnar vill lúffa fyrir þessum peningamönnum, jafnvel borgarstjórinn sem hangir á völdunum hvað sem það kostar þótt hann hafi lýst yfir því áður en hann komst til valda að hann myndi aldrei samþykkja það. Eða það hef ég fyrir satt.

Í ár eru 30 ár frá því haldin var samkeppni arkitekta um útlit nýrrar seðlabankabyggingar sem var ætlaður staður á lóðinni nr. 11 við Fríkirkjuveg. Seðlabankamenn tóku fram af gefnu tilefni að vildi einhver að húsið yrði varðveitt myndu þeir af góðmennsku sinni og höfðingsskap sjá um að flytja það á nýjan stað.

En Reykvíkingum var nóg boðið. Safnað var undirskriftum þar sem öllum þessum fyrirætlunum var mótmælt og einn þeirra sem skrifuðu undir mótmælin var Þór Magnússon, þáverandi þjóðminjavörður og Fríkirkjuvegur 11 stendur enn, sem betur fer. Húsið hefur hins vegar staðið autt í um það bil ár vegna þess að borgarfulltrúar í minni hlutanum hafa spyrnt við fótum  og reyna að fá embættismenn borgarinnar til þess að fara að settum reglum í stað þess að afhenda afkomendum Thors Jensens húsið á silfurfati.

En sala hússins er ekki það eina sem stendur til. Þeir sem vilja kaupa hyggjast breyta garðinum við húsið, sem hefur um áratugi gengið undir nafninu Hallargarður vegna þess að bindindishreyfingin átti húsið áður fyrr og það var kallað Bindindishöllin. Þeir vilja breyta honum þannig að unnt sé að renna þangað inn limosínum , "tiginna gesta" án þess að skilgreint hafi verið hvað það hugtak þýðir í þessu tilfelli og vilja fá leyfi til þess að loka garðinum með lögregluvaldi þegar þessa tignu gesti ber að garði.

Dálítill hópur fólks sem finnst þetta vera mjög varhugavert hittist í dag og ákvað að halda kynningarfund í sjálfum Hallargarðinum klukkan 13 á sunnudaginn og stofna í framhaldi af því hollvinasamtök Hallargarðsins, endurtaka leikinn frá 1968 og veita þessum fyrirætlunum harða mótspyrnu.

Ég álpaðist á þennan fund með þeim afleiðingum að ég var gerður að fundarstjóra, þrátt fyrir að ég benti vinsamlegast á að ég kynni ekki fundarstjórn. Það verður þá bara að hafa það - mér finnst þetta svo mikilvægt prinsippmál að svoleiðis smámunir mega ekki þvælast fyrir manni. Almennir borgarar Reykjavíkur (og fleiri, sjálfur er ég orðinn Hafnfirðingur) verða að taka höndum saman og stöðva framrás útrásarmannanna, stöðva landvinninga þeirra í borginni okkar, koma í veg fyrir að þeir fái yfirráðarétt undir lögregluvernd yfir einum af almenningsgörðum borgarinnar. Þetta bætist við þann yfirgang auðmannanna sem þeir hafa sýnt undanfarin ár með því að valta

yfir gömlu Reykjavík, rífa hvert húsið af öðru og reisa steingelta og andstyggilega íbúðaturna, gera meðal annars Skuggahverfið að sannkölluðu skuggahverfi og yfirleitt leika borgina þannig að útlendingar spyrja agndofa hvort borgin hafi farið illa út úr loftárásum í stríðinu.

Við sem vorum skipuð í undirbúningsnefnd þessarar félagsstofnunar ætlum að ráða ráðum okkar á morgun og reyna að halda fjölmennan fund fyrir framan Fríkirkjuveg 11 - ung baráttukona sem ég held að sé í Kvennó talaði um að virkja ungt fólk til að grilla og stjórna leikjum - og ætlunin var að fá að skoða húsið innan en það virðist ætla að bregðast því skömmu eftir að Hrólfur Jónsson sviðsstjóri (eða eitthvað svoleiðis) hjá borginni hafði samþykkt það hringdi hann og sagði að því miður væri það ekki mögulegt. Við hvað eru þeir hræddir?

Sjáumst í Hallargarðinum, fyrir framan Fríkirkjuveg 11, klukkan 13 á sunnudaginn (með regnhlíf ef rignir)!


Muna að lesa yfir!

Hvernig væri að blaðamenn á mbl.is læsu nú yfir það sem þeir skrifa áður en þeir senda það í loftið? Eða hvað þýðir þetta: "Hundruðir rannsókn hafa verið gerðir...."?

Mér skilst raunar að enginn prófarkalestur sé á þessum miðli, sem er til skammar fyrir hinn aldraða og virðulega eiganda. 


Blaðamennska heimsins er á heljarþröm, í gíslingu kapítalismans

Þótt 13 ár séu liðin síðan ég var síðast fastur starfsmaður á fjölmiðli reyni ég enn að telja sjálfum mér trú um að ég sé fyrst og fremst blaðamaður, þótt rithöfundarnafnið hljóti að vera innan seilingar þar sem ég er þó alltént félagi í Rithöfundasambandi Íslands - en hef hins ekki verið í Blaðamannafélaginu árum saman. Mér finnst raunar miður að vera ekki í því félagi. Eða hvað?

Ég hef lengi verið ósáttur við þá þróun sem íslensk blaðamennska hefur tekið hin síðari ár - mörg. Mér virðast vinnubrögð íslenskra blaðamanna sífellt verða yfirborðskenndari, stjórnmálamenn og embættismenn sleppa allt of billega frá spurningum þeirra, sleppa við að gefa skýringar sem þeir ættu að gefa og það verður æ sjaldgæfara að blaðamenn rannsaki málin sjálfir, kanni þau ofan í kjölinn og upplýsi okkur sem teljumst til almennings. Um þetta gæti ég skrifað langt mál - og geri það vafalaust fyrr eða síðar. Í dag hef ég ekki tíma til að kafa mjög djúpt í þetta en læt nægja í bili að setja hér netslóð sem mér var send í morgun og leiðir inn í fróðleg skrif um þetta efni. Þar kemur í ljós að þetta er ekki aðeins íslenskt vandamál, ástæða sé til að hafa áhyggjur af blaðamennsku heimsins, henni hafi hnignað mjög frá því seint á níunda áratug síðustu aldar þegar Rupert Murdoch skóp fjölmiðlaveldi sitt og blaðamenn nútímans séu fyrst og fremst þrælar heimskapítalismans og gróðahyggjunnar, hlekkjaðir við skrifborð og tölvu og rannsaki mál sárasjaldan, hver lepji fréttirnar meira og minna upp eftir öðrum.

 Í lok greinarinnar er slóð á kynningu bókar sem kom út í síðasta mánuði og heitir Flat Earth News eftir Nick nokkurn Davies og virðist vera mjög athyglisverð.

http://www.cpbf.org.uk/body.phtml?doctype=news&id=1 998

Hvaða fjölmiðill hefur t.d. reynt að setja eldsneytisverðsmótmæli vörubílstjóra í stærra samhengi?

Ég bara spyr.


Samúð mín með trukkabílstjórum gufaði upp

Í nokkra daga hafði ég dálitla samúð með mótmælum vörubílstjóra en gat náttúrlega trútt um talað því ég þarf ekki að láta loka mig af í bíltík minni í umferðarstöppu og hírast þar undir ærandi flautukór. Ég hugsaði á þá leið að vissulega væru þetta ekki löglegar aðgerðir en uppreisn alþýðunnar í París 1786 hefði ekki heldur verið lögleg en þó varð hún upphafið að sjálfu lýðræðinu.

En svo fóru að renna á mig tvær grímur, ef ekki fleiri. Spurningarnar fóru að hrannast upp: Hver á raunverulega sök á háu eldsneytisverði? Hvers vegna mótmæla því frekar en okri á helstu lífsnauðsynjum? Og við hverju búast bílstjórarnir þegar þeir segjast halda áfram þangað til stjórnvöld fari að kröfum þeirra? Búast þeir virkilega við því að ríkisstjórnin fórni höndum og lækki álagninguna og olíufélögin geri það sem þau gerðu í einn dag, slægju 25 krónum af verði bensínlítrans? Ég trúi því ekki eitt augnablik að þetta gerist. Ég veit ekki heldur hvað bílstjórarnir halda að gerist né hve lengi þeir halda þetta út. Kannski í allt vor og sumar og fram á haust???? Ég veit ekki. Hitt veit ég að þessi mótmæli vörubílstjóra hér norður á Íslandi hafa engin áhrif á þá sem hafa hið raunverulega vald á eldsneytisverðinu..... ég ætla ekki að hætta mér út á þann hála ís að vöngum frekar yfir því.

Hins vegar fór ég að velta því fyrir mér hvers vegna lögreglan tekur þessa mótmælendur þeim vettlingatökum sem raunin er og fór að rifja upp aðfarirnar gegn Falun Gong og krökkunum sem flykktust austur á hálendið til þess að mótmæla þeim gríðarlegu landspjöllum sem Kárahnjúkavirkjun er og álvitleysunni á Reyðarfirði sem nú er að koma í ljós að bjargar víst ekki Austurlandi eins og að var stefnt - því miður. Lögreglan hundelti þetta fólk, rak úr landi, sendi mál þess fyrir dómstóla á þeirri forsendu að það hefði brotið gegn grundvallargildum þjóðfélagsins (sem lögreglustjórinn gat alls ekki útskýrt hver væru þegar honum var stillt upp við hlið bresku stúlkunnar sem átti að hafa brotið þessi gildi -- henni vafðist hins vegar ekki tunga um tönn). Kannski bílstjórarnir fái á endanum ákærur vegna brota á þeim grunréttindum borgaranna fá að komast leiðar sinnar á blikkbeljum sínum. Hver veit.

En þegar jeppaeigendur og félagar í 4x4 mættu á ofurjeppum sínum og eigendur fóðurflutningabíla með 300 hestafla vélar blönduðu sér í mótmælin var mér öllum lokið. Þarna voru komnir strákar á leiktækjum sínum og ég get ómögulega haft samúð með þeim. Sjálfur á ég jeppa. En hann eyðir innan við tíu lítrum á 100 km. Ofurjeppaeigendurnir telja slíkar tíkur varla með - en ég er hæstánægður. Og get ómögulega haft samúð með mótmælum þeirra. Stöndum heldur vaktina  í verðlagseftirlitinu með Neytendasamtökunum og verkalýðshreyfingunni sem mér sýnist hafa boðað endurnýjun á hugsunarhættinum sem dugði til að drepa verðbólguna á árunum eftir 1990. Snúum bökum við bröskurunum sem voru komnir vel á veg með að koma efnahagslífinu hjá okkur fyrir kattarnef en snúum bökum saman í hagsmunagæslunni fyrir almennt launafólk.

Spörum svo einkabílana í sumar, hjólum, göngum, tökum strætó (en handónýtt strætókerfi þarf að stórbæta)


Svona tala ekki fjármálaráðherrar

"Árni M. Mathisen óttast að svör hans til umboðsmanns alþingis vegna ráðningar Þorsteins Davíðssonar í embætti Héraðsdómara hafi takmarkaða þýðingu, því umboðsmaður hafi mótað sér afstöðu í málinu fyrirfram."

Svona getur fjármálaráðherra landsins ekki leyft sér að tala, kjörinn alþingismaður á Alþingi Íslendinga og ráðherra. Svona tala aðeins hortugir götustrákar sem láta aldrei af skoðunum sínum og telja sig ætíð hafa rétt fyrir sér. En svona talar ekki maður sem vill láta taka mark á sér. Maður sem tekur ekki mark á því sem fagleg matsnefnd um ráðningu dómara, skipuð samkvæmt lögum til þess að gefa faglegt álit sitt, hefur ekkert á Alþingi að gera, hvað þá í ráðherrastól. Betra hefði verið og heiðarlega af ráðherranum að beita sér fyrir því að nefndin yrði lögð niður, rétt eins og ákveðinn fyrrverandi ráðherra, skyldur drengnum sem var gerður að dómara, gerði í öðru tilfelli og ráða hann svo.

Sem dýralæknir hefði hann kannski getað leyft sér að segja:  "...staða aðstoðarmanns ráðherra sé að lögum sambærileg við starf skrifstofustjóra í ráðuneyti. Einnig að þrátt fyrir að aldrei hafi reynt á störf Þorsteins sem varamanns í yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis hafi Alþingi sýnt Þorsteini þann trúnað og traust að kjósa hann til starfans. Hann eigi auðvelt að greina aðalatriði frá aukaatriðum og hafi tekið virkan þátt í félagsstörfum í gegn um tíðina." En þetta segir ekki ráðherra í ríkisstjórn. Við gerum meiri kröfur til slíkra manna en svo.

Þetta er svo kjánalegt allt  saman að maður getur ekki orða bundist svona á síðkvöldi eftir skammt af Auden í meðförum Egils....


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband